Fréttir

Total items: 1194

SR -SA í Laugardalnum!

Dags: 22.10.2004 11:12


SR leikur fyrsta heimaleik sinn í Íslandsmóti karla annað kvöld, gegn norðanmönnum úr SA. Okkar liði hefur vegnað mjög vel og unnið fyrstu tvo leikina, við Björninn í Egilshöll og við SA á Akureyri. Báðir þessir leikir hafa verið mjög skemmtilegir enda lið okkar ungt og léttleikandi og með einn albesta íshokkíleikmann sem spilað hefur á Íslandi, Tékkann Zdenec Prochasca, innanborðs. Við hvetjum alla til að fjölmenna á leikinn sem hefst kl. 18:50 í Laugardalnum. Strax á eftir leikur 3. fl. SR við SA.