Fréttir

Total items: 1194

Tap hjá 3. flokki

Dags: 20.10.2004 17:26


Ekki tókst 3. flokki SR að fylgja eftir stórsigri á Akureyringum er þeir mættu Birninum í Laugardalnum í gærkvöldi í Íslandsmótinu. Eftir jafnræði með liðunum í fyrsta leikhluta, þar sem bæði liðin skópu sér ágætis færi, hrundi niður leikur okkar manna og Björninn gekk á lagið og vann sigur, 5 - 0. SR-ingar virkuðu óvenju þreyttir og seinir er á leikinn leið og virtist auk þess fyrirmunað að nýta þau fjölmörgu færi er þeir fengu. Björninn lék skínandi vel, sérstaklega vörnin þeirra sem vann mjög vel og skipulega. Þetta var ekki okkar dagur en veturinn er rétt að byrja. Leikurinn var annars drengilega spilaður og dómgæsla hin besta.