Dags: 10.10.2004 14:51
SR-ingar gerðu góða ferð til Akureyrar um helgina er meistaraflokkur og 3. flokkur mættu SA í Íslandsmótinu á laugardagskvöldið. Fyrst lék meistaraflokkur sem kom, sá og sigraði Akureyringa 7 -4. Leikurinn var á köflum ágætlega leikinn, sérstaklega hjá SR-ingum, en þess á milli datt hann niður í tætingslegan leik, þar sem leikmenn létu senda sig af velli fyrir kjánaleg brot. SR komst í 3 -1 og síðan 4 - 4 en þá kom slæmur kafli hjá SR-ingum er þeir hleyptu SA inn í leikinn með tómu kæruleysi og taugaveiklun. SA jafnaði 4 - 4, sem gaf alls ekki rétta mynd af gangi leiksins því SR hafði vaðið bókstaflega í færum fram að því án þess að geta nýtt sér þau. T.a.m. áttu þeir 4 stangarskot og nokkur galopin færi. Sennilega var þar taugaveiklun að verki, sérstaklega hjá yngri leikmönnum. En svo fór þetta að skána og SR-ingar tóku öll völd á ísnum, komust yfir og sigldu svo fram úr örugglega og sigruðu 7 - 4. Góður sigur á hinu gamla stórveldi, og það á þeirra heimavelli.
SR-ingar sýndu í þessum leik að þeir eru með mjög öflugt lið og að þeir eru til alls líklegir nái þeir að halda uppi sínu góða spili og losna við kjánalega brottrekstra. Ennfremur þurfa þeir að bæta "power-play" leik sinn og þar mættu þeir læra af Akureyringum sem eru mjög hættulegir einum fleiri. Í þessum leik brá annars oft fyrir stórgóðum leik en eftirminnlegustu tilþrifin var stórglæsilegt mark Úlfars Andréssonar er hann gjörsamlega sundurspilaði vörn SA og kláraði sprettinn með góðu marki. Annars eiga allir leikmenn hrós skilið og að sérstaklega fyrir að halda haus þrátt fyrir klúðruð færi. Mörk SR (með fyrirvara): Ingvar Jónsson (2), Zdenek Prohascka (2), Ágúst Ásgrímsson (1), Gauti Þormóðsson (1), Úlfar Andrésson (1).
Strax á eftir þessum leik mætti 3.flokkur Akureyringum. Það er skemmst frá því að segja að SR gjörsamlega sundurspilaði Akureyringana og unnu 11 - 2. SR spilaði oft mjög vel og baráttan var í fyrirrúmi ásamt pottþéttri markvörslu Arons Stefánssonar. Ennfremur gátu SR-ingar leyft sér einstaklingsframtak til að brjóta upp leikinn því SA átti fá svör við slíku einstaklingsframtaki. Þó var það heildin sem var svona sterk og reyndir leikmenn, jafnt sem óreyndari, fullir sjálfstrausts. Í þessum leik kom fram mikill getumunur á liðunum og greinilegt að Akureyringar þurfa að spýta í lófana því þeir geta gert miklu betur með góðum stuðningi. SR-ingar þurfa að halda áfram á þessari braut og byggja ofan á þennan árangur. Mörk SR (með fyrirvara): Þorsteinn Björnsson (6), Andri Guðlaugsson (2), Gunnlaugur Karlsson (1), Sturla Gíslason (1), Hjörtur Hilmarsson (1).
Str