Fréttir

Total items: 1194

Dagskrá landsliða 2004 !

Dags: 06.10.2004 22:11


ÍHÍ hefur skráð fjögur landslið til keppni í heimsmeistaramótum á vegum Alþjóðaíshokkísambandsins (IIHF) fyrir árið 2005.
 
Fyrst skal nefna karlalandslið Íslands sem fer til Belgrad í Serbíu og Svartfjallalandi í lok mars 2005 en dagskrá þess verður sem hér segir. 
3.4.2005, Ferðadagur til Serbiu og Svartfjallalands
4.4.2005, Ísland - Belgía, kl 17:00
5.4.2005, Ísland - Norður-Kórea, kl 17:00
6.4.2005, Frídagur
7.4.2005, Spánn – Ísland, kl 13:30
8.4.2005, Ísland - Serbía og Svartfjallaland, kl 20:30
9.4.2005, Frídagur
10.4.2005, Ísrael – Ísland, kl 13:30
11.4.2005 Ferðadagur heim  

Í fyrsta sendir Ísland kvennalandslið en það fer alla leið til Nýja Sjálands og etur þar kappi við heimamenn, Kóreu og Rúmeníu. Dagskráin þeirra verður sem hér segir: 
30.3.2005, Ferðadagur 1
31.3.2005, Ferðadagur 2
1.4.2005, Kórea - Ísland, kl 16:30
2.4.2005, Rúmenía - Ísland, kl 16:30
3.4.2005, Frídagur
4.4.2005, Ísland - Nýja Sjáland, kl 16:00
5.4.2005, Ferðadagur 1
6.4.2005, Ferðadagur 2  

Undir 20 ára liðið (U20) fer síðan til Mexíkóborgar í janúar og nú í fyrsta skipti í mörg ár verður þessi hópur heima um áramót. Annars verður dagskráin þeirra svona:
8.1.2005, Ferðadagur 1
9.1.2005, Ferðadagur 2
10.1.2005, Tyrkland - Ísland, kl 17:00
11.1.2005, Ísland - Búlgaría, kl 17:00
12.1.2005, Frídagur 
13.1.2005, Ísland - Mexíkó, kl 20:30
14.1.2005, Frídagur
15.1.2005, Ísland - Nýja Sjáland, kl 17:00
16.1.2005, Suður Afríka - Ísland, kl 20:30
17.1.2005, Ferðadagur 1
18.1.2005, Ferðadagur 2 

Að lokum er það svo undir 18 ára liðið (U18) sem fer annað árið í röð til að verja sæti sitt í annarri deild. Sú keppni fer fram í Búkarest í Rúmeníu en dagskrá þeirra verður svona:
20.3.2005, Ferðadagur til Búkarest
21.3.2005, Ísland – Króatía, kl 13:30
22.3.2005, Ungverjaland – Ísland, kl 13:30
23.3.2005, Frídagur
24.3.2005, Rúmenía - Ísland, kl 20:30
25.3.2005, Litháen – Ísland, kl 17:00
26.3.2005, Frídagur
27.3.2005, Mexikó – Ísland, kl 17:00
28.3.2005, Ferðadagur heim
 
Nánari upplýsingar verður að finna á www.ihi.is