Fréttir

Total items: 1194

Glæsilegur sigur SR!

Dags: 28.09.2004 23:58


Það var töluverður spenningur í lofti hjá SR-ingum er þeir mætti Birninum í Egilshöllinni í gærkvöldi. Lið SR er mikið breytt frá því á síðasta tímabili, enda uppistaðan fyrst og fremst ungir og efnilegir strákar sem ætlað er að taka hlutverk þeirra eldri sem hafa horfið úr liðinu. Þetta var fyrsti leikur liðsins í Íslandsmótinu og jafnframt fyrsti leikur þess undir stjórn hins nýja þjálfara, Stanislavs Berger frá Tékklandi. Auk þess var þetta fyrsti leikur hins nýja leikmanns SR-inga, Tékkans Zdenec Prochasca, en hann hefur m.a. leikið undir stjórn Bergers í U19 ára landsliði Tékka. Og byrjunin lofar góðu; SR lék á alls oddi í þessum leik og unnu glæsilegan sigur, 7-3. SR komst í 6-1 í lok annarrar lotu með tveimur mörkum frá Sindra Má Björnssyni, og einu marki frá Gauta Þormóðssyni, Helga Páli Þórissyni, Zdenec Prochacka og Þorsteini Björnssyni, sem jafnframt var hans fyrsta mark með meistaraflokki. Öll voru þessi mörk hverju öðru fallegra. Í þriðju lotu slökuðu SR-ingar aðeins á og Björninn gekk á lagið og bætti við tveimur mörkum, og lagaði stöðuna í 6-3. Það var síðan Gauti sem innsiglaði sigurinn með góðu marki úr hraðaupphlaupi. Allt SR liðið átti góðan leik en sérstaklega var gaman að fylgjast með varnarleik og sendingartækni Zdenecs, en þarna er á ferðinni mjög góður leikmaður sem íslenskir varnarmenn geta margt lært af. Það verður gaman að fylgjast með honum í vetur og óhætt að segja að hann sé góð viðbót við ankerin í vörninni, Ingvar Jónsson og Ágúst Ásgrímsson sem áttu frábæran leik í gærkvöldi. Svo má ekki gleyma þætti Arons markvarðar Stéfánssonar en hann sýndi oft á tíðum frábæra markvörslu er SR-ingar slökuðu á í þriðju lotu. Þrátt fyrir góða baráttu hjá Birninum sáu þeir vart til sólar í þessum leik, ef undan er skilinn slæmur kafli hjá SR er SR-ingar lentu æ ofan í æ í boxinu. Hjá Birninum var Sergei mest áberandi ásamt markmanni þeirra er varði oft mjög vel er á leið leikinn. Framtíðin er því björt hjá SR-ingum og sérstaklega ef haft er í huga að þjálfarinn gat valið úr enn stærri hóp leikmanna en oft áður. Þannig hvíldu leikmenn sem eiga fullt erindi í þetta lið - slík er breiddin.