Fréttir

Total items: 1194

Björninn - Narfi 9-7

Dags: 26.09.2004 11:30


Þá höfum við fengið að sjá Narfann úr Hrísey en þeir mættu Birninum í fyrsta leik vetrarins í Egilshöllinni í gærkvöldi. Ekki var fyrirfram búist við miklu af Narfa enda hefur liðið víst ekki stundað æfingar af kappi fyrir Íslandsmótið. Í liðinu eru hins vegar margir reyndir leikmenn og aðrir sem gætu orðið enn betri með meiri æfingu. Leikar fóru svo að Björninn bar sigurorð af þeim appelsínugulu, 9-7, eftir að hafa lent tveimur mörkum undir í fyrstu lotu. Björninn sýndi ekki sínar bestu hliðar í þessum leik, nema Sergei Zak sem var allt í öllu hjá liðinu. Spil þeirra var alls ekki sannfærandi en það á eflaust eftir að slípast. Narfi þarf hins vegar á meiri orku að halda því þeir verða að geta haldið út í þrjár lotur (og 17 leiki í viðbót!), en þeir komust þó nokkuð sómasamlega frá þessum fyrsta leik.