Dags: 21.09.2004 19:22
Fram hefur komið í fréttum að Peter Forsberg, einn allra besti íshokkíleikmaður í heiminum í dag, muni segja skilið við lið sitt í NHL, Colorado Avalance, og leika í vetur með gamla liðinu sínu, MODO frá Ornskoldsvik í Norður-Svíþjóð. Þar hittir hann fyrir m.a. tvíburana efnilegu úr Vancouver Canucks, Daníel og Henrik Sedin, ásamt æskuvini sínum, Markus Naslund (Vancouver). Þetta eru stórtíðindi en kveikjan að þessum vistaflutningum eru vinnudeilur milli NHL leikmanna og eigenda NHL liðanna. Mikill fjöldi NHL leikmanna hefur nú skráð sig í lið á meginlandi Evrópu og stefna á að leika með þessum liðum, alla vega á meðan þessar deilur standa yfir. Flestir hafa valið lið í Svíþjóð, Tékklandi og Rússlandi og jafnvel Sviss. Þannig má fylgjast með Joe Thornton (Boston Bruins) með Davos frá Sviss. Ekki er vitað til þess að einhverjir séu á leið til Narfa. Lista yfir þessa leikmenn má sjá hér.