Dags: 15.09.2004 18:55

Það fór einsog svo marga grunaði að Kanada myndi bera sigurorð af Finnum í úrslitaleik Heimsbikarkeppninnar sem fram fór í Toronto í gærkvöldi. Kanada vann leikinn 3-2 en þurftu þó virkilega að hafa fyrir sigrinum. Það má segja að Finnar geti sjálfum sér kennt hvernig fór því þeir fengu öll þrjú mörkin á sig eftir mistök og einbeitingarleysi í vörninni, ásamt freakar slakri markvörslu Miikka Kiprosoff. Kanada skoraði t.d. í sínu fyrsta skoti, eftir 54 sekúndur í fyrsta leikhluta og var þar að verki Joe Sakic eftir sendingu frá Mario Lemieux. Finnar jöfnuðu með en aftur skoruði Kanada á fyrsta skoti í öðrum leikhluta, og nú með lausu úlnliðsskoti. Hinnn ungi leikimaður Finna, Tuomo Ruutu, skoraði síðan gott mark eftir glæsilegan undirbúning þar sem hann sólaði þrjá varnarmenn áður en hann skoraði framhjá Martin Brodeur þeirra Kanadamanna. Staðan því jöfn, 2-2 er gengið var til leikhlés. Strax í upphafi þriðja leikhluta, eða eftir 34 sekúndur, skoraði svo Shane Doan þriðja marka Kanada en Shane tilheyrði pressu(tudda)línu Kanada sem yfirleitt er nú ætlað að draga tennurnar úr leiknu línum andstæðinganna, í þessu tilviki Saku Koivu, Teemu Selanne og Jere Lehtinen. Finnar reyndu hvað þeir gátu til að jafna en allt kom fyrir ekki. Kanada hafði bætt enn einum titlinum í höfn. Þeir ríkja í íshokkíinu um þessar mundir. Finnar geta þó borið höfuðið hátt og augljóst að gott unglingastarf er að skila sér hjá þeim.