Fréttir

Total items: 1194

Tékkar rúlla yfir Svía

Dags: 07.09.2004 22:20


Fyrstu leikirnir í undanriðlum Heimsbikarkeppninnar fóru fram í kvöld er Svíar tóku á móti Tékkum í Stokkhólmi og Finnar mættu Þjóðverjum í Helsinki. Tékkar, sem höfðu tapað fyrir bæði Finnum og Svíum í riðlakeppninni, sýndu frábæran leik og slógu Svía alveg út af laginu. Tékkar spiluðu mjög öflugan varnarleik sem stórstjörnur Svía, einsog Marcus Naslund (Vancouver Canucks), Fredrik Modin (Taampa Bay) og Peter Forsberg (Colorado Avalance), áttu ekkert svar við. Þeir komu fáum skotum á markið og Tomas Vokoun, markvörður Tékka, tók það sem rataði á markið. Á meðan gerðu Svíar hver mistökin á fætur öðrum í varnarleiknum sem Tékkar nýttu sér vel. Þannig skoraði Milan Hedjuk (Colorado Avalance) t.d. tvö mörk fyrir Tékka. Annars þótti Jaromir Jagr sýna stórleik í liði Tékka eftir alla þá gagnrýni sem hann hefur fengið heima fyrir fyrir slælega frammistöðu í Heimsbikarmótinu. Þessi úrslit eru mikið áfall fyrir Svía, eftir að hafa tapað tvö ár í röð fyrir Kanada í úrslitaleik Heimsmeistaramótsins, og aðeins tveimur og hálfu ári eftir áfallið mikla, tapið gegn Hvíta-Rússlandi á Ólympíuleikunum í Salt Lake City 2002.   Í hinum leiknum unnu Finnar Þjóðverja í átakalitlum leik, 2-1. Það verða því Tékkar sem mæta annað hvort Kanada eða Slóvakíu í Toronto, og Finnar sem mæta sigurvegaranum úr leik Rússa og Bandaríkjanna.