Fréttir

Total items: 1194

Stanislav Berger mættur!

Dags: 01.09.2004 00:09


Í gærkvöldi kom til landins hinn nýji þjálfari SR, Tékkinn Stanislav Berger. Hans fyrsta æfing er í kvöld með 3. flokki en strax á eftir hittir hann strákana í 2. flokki og Meistaraflokki. Það mun sjálfsagt taka einhvern tíma fyrir Stanislav að aðlagast aðstæðum hér á landi, en allir verða að leggjast á eitt að gera hans starf auðveldara og taka vel á móti honum. Við viljum bjóða hann hjartanlega velkominn í raðir SR-inga.