Dags: 28.08.2004 12:42
Um helgina eða frá kl. 12:00 - 16:00, laugardag og sunnudag fer fram skráning byrjenda í íshokkí. Allir þeir sem hafa áhuga á að æfa íshokkí hjá Skautafélagi Reykjavíkur verða fyrst að byrja í Skautaskóla íshokkídeildar, en þar eru m.a. undirstöðuatriði skautaiðkunar kennd áður en kemur að íshokkíkennslu. Ýmist er hægt að skrá sig á þessum tíma á skrifstofu íshokkídeildar í Skautahöllinni í Laugardal, eða í síma 553-3838. Einnig er hægt að skrá sig í hockey@simnet.is. Fyrsta æfingin í Skautaskólanum er miðvikudaginn 1.september kl. 16:00 - 16:45.
Annars er æfingatafla Skautaskólans sem hér segir:
Mánudagur 17:15 - 18:00
Miðvikudagur 16:00 - 16:45
Laugardagur 10:15 - 11:00
Mæting er ávallt 10 - 15 mín fyrir æfingu