Dags: 26.08.2004 19:19
Nú styttist í að hinn nýji þjálfari SR í íshokkí, Stanislav Berger, komi til landsins en hann er væntanlegur n.k. þriðjudagskvöld. Miðvikudaginn 1. september byrja svo æfingarnar á fullu en æfingatafla fyrir haustið verður sett á heimasíðuna sunnudaginn 29. ágúst. Miklar vonir eru bundnar við Stanislav enda er hann bæði vel menntaður í íþróttafræðum og með geysilega mikla þjálfunarreynslu. M.a. hefur hann þjálfað marga af frægustu leikmönnum Tékka sem nú spila í NHL. Svo er bara að sjá hvort við kunnum að nýta okkur hana. Til gaman birtum við hér úr ferilskrá hans síðustu árin.
1981-88: Umsjón með ungliðastarfi hjá tékkneska Íshokkísambandinu
1987-90: Þjálfari U20 landsliðs Tékka
1988-90: Þjálfari Spörtu Prag í Elite deild, Senior lið
1990-94: Þjálfari Sapporo í japönsku Elite deildinni
1994-96: Þjálfari Spörtu Prag í Elite deild, Senior lið
1997-02: Þjálfari Spörtu Prag í Elite deild, Junior lið
1997-00: Þjálfari U16, U17 og U18 landsliða Tékka
2002-04: Framkvæmdastjóri Mlada Boleslav í tékknesku 1.deild