Fréttir

Total items: 1194

Íshokkítímabilið að byrja!

Dags: 23.08.2004 21:10


Í næstu viku hefst æfingatímabilið hjá íshokkídeild Skautafélags Reykjavíkur en nú er verið að ganga frá æfingatöflu fyrir veturinn. Skráning eldri félaga í alla flokka fer fram á fyrstu æfingu hvers flokks en æfingatafla fyrir alla flokka verður birt hér á heimasíðunni eigi seinna en um næstu helgi. Hins vegar fer skráning byrjenda, þ.e. þeirra sem aldrei hafa æft íshokkí, fram um helgina eða frá kl. 12:00 - 16:00, laugardag og sunnudag. Ýmist er hægt að skrá sig á þessum tíma á skrifstofu íshokkídeildar í Skautahöllinni í Laugardal, eða í síma 553-3838. Einnig er hægt að skrá sig í hockey@simnet.is. Rétt er að minna á að allir þeir sem hafa áhuga á að æfa íshokkí hjá Skautafélagi Reykjavíkur verða fyrst að byrja í Skautaskóla íshokkídeildar, en þar eru m.a. undirstöðuatriði skautaiðkunar kennd áður en kemur að íshokkíkennslu. Skautaskólinn hefur verið mjög vinsæll en um 180 börn og unglingar tóku þátt í honum sl. vetur. Nánari upplýsingar um Skautaskólan fyrir byrjendur í íshokkí er hægt að nálgast á skrifstofunni eða á heimasíðunni (sjá hér).