Dags: 17.08.2004 10:22
Í gær hófust Æfingabúðir 2 á vegum íshokkídeildar SR en þær munu standa út vikuna. Mjög góð aðsókn var að Æfingabúðum 1 í síðustu viku og greinilegt að mikil þörf var fyrir slíkar búðir. Þeir Helgi Páll og Ingvar munu halda áfram á sömu leið þessa vikuna, bæta við nýjum æfingum og skerpa á öðrum. Þeir sem hafa áhuga á að taka þátt skrái sig á kmaack@simnet.is. Svo styttist óðum í að tímabilið hefjist en unnið er að gerð æfingatöflu og skipulagi æfinga innan stjórnar SR. Upplýsingar um innritun og æfingatöflur verða birtar á heimasíðunni um leið og þær liggja fyrir.