Fréttir

Total items: 1194

Æfingabúðum 1 lýkur í kvöld

Dags: 13.08.2004 15:17


Í kvöld eru síðustu æfingarnar í Æfingabúðum 1 sem staðið hafa alla vikuna. Þær hafa gengið vonum framar, mikill áhugi hjá leikmönnum, og kælingin kærkomin tilbreyting í því hitabeltisloftslagi sem leikið hefur um höfuðborgina þessa viku. Þrátt fyrir þessa hita hefur gengið vel að halda úti góðu svelli enda telja ísmennirnir í Laugardalnum sig vera þá allra bestu hefilstjóra og svellgerðarmenn sem fyrirfinnast. Þesir hitar hafa þó leitt það í ljós, sem engum hefði átt að koma á óvart, að það er hægur vandi að halda úti góðu svelli í þessum sumarhita, rétt einsog í Suðurríkum Bandaríkjanna eða á sumrin í Kanada. Í næstu viku hefjast svo Æfingabúðir 2 en áhugasamir geta skráð sig í þær eigi seinna en laugardaginn 14. ágúst (kmaack@simnet.is og Helgi 861-4939). Æfingatafla verður sú sama (sjá hér til hliðar) og þeir Helgi Páll og Ingvar munu sjá áfram um alla þjálfun.