Fréttir

Total items: 1194

Gamlir SR-ingar í Narfa

Dags: 09.08.2004 10:12


Eins og komið hefur fram hefur verið lögð fram beiðni um að Ungmennafélagið Narfi frá Hrísey fái að senda lið í Íslandsmót karla í íshokkí næsta vetur. Þeir sem standa að þessu liði eru fyrst og fremst norðanmenn en í þessum leikmannahópi verða þó fyrrverandi SR-ingar því þeir Snorri Rafnsson, Jónas Rafn Stefánsson , Elvar Jónsteinsson og Heiðar Ingi Ágústsson hafa gengið í raðir Narfa. Allt eru þetta sterkir leikmenn á góðum degi og því eftirsjá fyrir SR. Þeir hafa þó sumir hverjir dregið verulega úr íshokkíiðkun af ýmsum ástæðum og því gleðiefni að sjá þá taka fram skautana á ný. SR óskar þeim velfarnaðar í nýju liði.