Fréttir

Total items: 1194

Byrjað að frysta svellið

Dags: 04.08.2004 19:44


Það fer ekki milli mála að óðum styttist í að skautatímabilið fari að byrja. Starfsmenn Skautahallarinnar í Laugardal, með Jón í broddi fylkingar, eru byrjaðir að frysta svellið. Búið er að mála línur og merki og frysting gengur vel. Strax í næstu viku hefjast svo æfingabúðir, bæði hjá listskauturum og hjá íshokkíiðkendum. Listskautasambandið verður með tveggja vikna æfingabúðir frá því snemma að morgni til kl. 18:00. Síðan taka æfingabúðir íshokkídeildar SR við kl. 18:15 og standa fram eftir kvöldi næstu tvær vikur. Það verður því nóg um að vera í Laugardalnum strax eftir næstu helgi.