Fréttir

Total items: 1194

Nýr þjálfari ráðinn til starfa !!

Dags: 02.08.2004 20:07


tekkland.jpg

Nú á dögunum undirritaði Stanislav Berger frá Tékklandi undir þjálfarasamning við íshokkídeild Skautafélags Reykjavíkur. Stanislav er með þjálfaragráðu frá Charles háskólanum í Tékklandi og með svokölluð "Alþjóðleg A réttindi" til íshokkíþjálfunar. Hann hefur mikla reynslu sem íshokkíþjálfari, bæði í Tékklandi og Japan, og því mikill fengur fyrir félagið. Hann hefur mikið komið að unglingaþjálfun en hann var m.a. unglingalandsliðsþjálfari Tékka frá 1997 til 2000 og sá þá um þjálfun á undir 16 ára, undir 17 ára og undir 18 ára landsliðum Tékka. Ennfremur var hann með U20 landslið Tékka í þrjú ár og þjálfari junior liðs Spörtu Prag frá 1997 - 2002. Hann hefur líka mikla reynslu sem þjálfari meistaraflokks en hann þjálfaði Senior lið Spörtu Prag á árunum 1988 til 1990, og svo aftur 1994 til 1996, en Sparta Prag er eitt sterkasta og virtasta liðið í tékknesku Elitedeildinni. Af þessari upptalningu má sjá að hér er á ferðinni mjög reyndur og virtur þjálfari enda hefur stjórn íshokkídeildar SR, með dyggri aðstoð Martin Matousek í SR, unnið í langan tíma að fá slíkan þjálfara í herbúðir SR-inga. Stjórn Skautafélagsins bindur miklar vonir við það að Stanislav eigi eftir að koma með gott og þarft innlegg inní félagið og almennt í íshokkíhreyfinguna á Íslandi, enda Tékkar stórveldi í íshokkí. Hans bíður hins vegar mikið verk að halda áfram með uppbyggingastarf undanfarinna ára. Sérstaklega er horft til þess að auka þurfi tækni og leikskilning og þar teljum við að Tékkar geti kennt okkur heilmargt.
Stanislav mun hefja störf eigi síðar en 1.september 2004.