Fréttir

Total items: 1194

Nýtt félag í Íslandsmót karla?

Dags: 26.07.2004 21:56


Samkvæmt frétt á heimasíðu Íshokkísambands Íslands hyggst íþróttafélag þeirra Hríseyinga, Narfi, senda lið í Íslandsmót karla í íshokkí en frétt á heimasíðu ÍHÍ hljóðar svona: "ÍHÍ barst nú skömmu fyrir helgi bréf undirritað af Þresti Jóhannssyni formanni Íþróttafélagsins Narfa í Hrisey, þar sem Narfi tilkynnir inn lið til keppni á Íslandsmóti í meistaraflokki karla á komandi tímabili. Eins og fram kemur í bréfi þessu þá hefur félagið þegar stofnað sérstaka nefnd til þess að halda utan um Íshokkí lið félagsins". Það verður fróðlegt að fylgjast með framhaldinu því nýtt lið með áhugasömum leikmönnum hlýtur að vera fengur fyrir íshokkíhreyfinguna. Hvort tómir Hríseyingar verða í liðinu verður svo að koma í ljós.  

 

Annars segir um Hrísey:

Í Hrísey hefur verið samfelld búseta allt frá því að land byggðist. Er Helgi magri, er nam Eyjafjörð, hafði vetursetu á Hámundarstöðum hér vestan fjarðarins, setti hann mann á land í Hrísey. Landnámsmaður þessi, Steinólfur hinn lági Ölvisson, mun hafa reist sér býli að Syðstabæ, þar sem lengi var höfuðból. Kirkja var þar um 1200. Í Syðstabæ hafa margir sögufrægir menn búið og má þar nefna Þorvald hinn gamla, Narfa Þrándarson og hákarla Jörund Jónsson, en af honum var reist stytta á Syðstabæjar-hólnum árið 1955.   Lengst af voru tvö býli í byggð í eynni, Syðstibær og Ystibær. Mest voru hér í byggð sjö lögbýlisjarðir í einu.