Dags: 27.07.2004 09:26

Þá er fullfrágengin dagskrá íshokkí- æfngabúðanna sem hefjast mánudaginn 9. ágúst í Skautahöllinni í Laugardal. Þessar æfingabúðir eru á vegum íshokkídeildar SR og eru undir stjórn Helga Páls Þórissonar og honum til aðstoðar verður landsliðsfyrirliðinn Ingvar Þór Jónsson. Æfingabúðirnar eru fyrst og fremst fyrir alla þá leikmenn SR sem vilja koma sér í gott leikform áður en tímabilið hefst af alvöru í lok ágúst. Lögð verður áhersla á kylfu- og skottækni (skothraði mældur) og æfingar sniðnar að þörf og getu hvers og eins. M.a. verður stuðst við finnskar æfingaáætlanir en Helgi Páll hefur m.a. sótt þjálfunarbúðir Alþjóða íshokkísambandsins í Viierumaki í Finnlandi. Hver ísæfing er 60 mín. fyrir yngri hópa og 75 mín. fyrir eldri hópa og hvert námskeið tekur 5 daga, þ.e. frá mánudagskveldi til föstudagskvölds. Fyrra námskeiðið er vikuna 9. til 13. ágúst, en það seinna 16. til 20. ágúst. Yngri hópar eru á ís frá 18:00–19:00 en eldri hópar frá 19:15–20:30. Auk þess verður boðið upp á fjölbreytilegar þrekæfingar fyrir eldri hópa að loknum ísæfingum. Verð fyrir vikunámskeið er 4500 kr. fyrir yngri hópa en 5000 kr. fyrir eldri hópa. Skráning á námskeið eru í netfangið kmaack@simnet.is eða í síma 861-4939 (Helgi). Þar sem framboð á ístíma og plássi er takmarkað eru félagsmenn hvattir til að skrá sig tímanlega en síðasti dagur skráningar er fimmtudaginn 5. ágúst.