Dags: 21.07.2004 17:33

Þeir eru margir á faraldsfæti íshokkíleikmenn okkar en þessa vikuna dvelja um 14 strákar í æfingabúðum í Landskrona í Svíðþjóð og nýlega dvöldu tveir SR-ingar við æfingar í Vierumaki í Finnlandi í Elíte búðum þar. Í lok mánaðarins fara svo aftur 9 SR-ingar og 3 Bjarnarmenn til Landskrona en þessir strákar eru fæddir 90 – 92 (sjá mynd til hliðar). Þessar ferðir eru mikil upplifun og reynsla fyrir þessa ungu leikmenn og víst að hún mun skila sér á ísnum næsta vetur. Svo skemmtilega vill til að Peter Bolin er að aðstoða við þjálfun í Landskrona og hann á því eftir að hitta þar mörg kunnugleg andlit frá Íslandi, jafnt leikmenn úr SR og foreldra, sem margir fjölmenna til Landskrona.