Dags: 28.06.2004 23:53

Það fór einsog svo margir höfðu spáð, rússarnir Alexander Ovechkin og Evgeni Malkin voru valdir númer eitt og tvö í nýliðavalinu á laugardaginn. Það voru Washington Capitals og Pittsburg Penguins sem hrepptu kappana. Þetta er í fyrsta skipti sem tveir rússar eru í efstu sætunum í NHL nýliðavalinu en samtals voru 12 Evrópubúar valdir í fyrstu umferð valsins. Samkvæmt reynslu undangenginna ára eru nýliðar frá Evrópu, að mati útsendara g umboðsmanna, yfirleitt fljótari að tileinka sér leikstílinn og baráttuna í NHL og þroskast fyrr en leikmenn frá N-Ameríku. Þetta hefur frekar hvatt lið í NHL til að velja unga stráka frá Evrópu. Þrátt fyrir þetta voru heldur færri Evrópubúar valdir í ár en í fyrra en 21 var valinn frá Tékklandi, 20 frá Rússlandi, 18 frá Svíþjóð, 15 frá Finnlandi og 10 frá Slóvakíu; þar á meðal hinn 201 cm risi Boris Valabik sem Atlanta Thrashers fékk í fyrsta vali. Það vekur athygli að tveir Danir voru valdir í ár, annar fór til Ottawa en hinn til Vancouver, og ennfremur markmaður frá Japan sem Los Angels Kings völdu. Nú er bara að fylgjast með og sjá hvort þessir efnilegu leikmenn eigi eftir að láta að sér kveða í framtíðinni í NHL. Dæmin sýna þó að jafnvel leikmenn sem valdir voru númer eitt, einsog Alexander Daigle hjá Ottawa og jafnvel Pavel Brendl hjá Atlanta Thrashers, eiga oft erfitt uppdráttar í NHL. Dæmin um hið gagnstæða eru þó fleiri einsog kapparnir Ilya Kovalchuk og Alexei Yashin sanna. Nánar má lesa um valið hér.