Fréttir

Total items: 1194

Nafnar yfirgefa SR

Dags: 24.06.2004 11:15


Nú er ljóst að meistaraflokkur SR þarf að sjá á eftir tveimur sterkum varnarmönnum en þeir Guðmundur Rúnarsson og Guðmundur Björgvinsson munu ekki spila með SR-ingum næsta vetur. Guðmundur Rúnarsson er fluttur til Danmörku þar sem hann hyggur á nám en Guðmundur Björgvinsson heldur í víking til Svíþjóðar þar sem hann mun fyrst aðstoða við þjálfun í Landskrona æfingabúðunum, en síðan spila með sænsku liði næsta vetur ef allt gengur eftir. Þetta er mikil blóðtaka fyrir SR-inga þar sem nafnarnir hafa verið öflugir í vörn SR undanfarin misseri. Ennfremur hefur Guðmundur Björgvinsson komið mikið við sögu við þjálfun yngri flokka hjá SR. Við þökkum þeim fyrir gott framlag í þágu félagsins og óskar þeim alls hins besta á erlendri grundu.