Fréttir

Total items: 1194

SR-ingar í æfingabúðir

Dags: 11.06.2004 12:53


Enda þótt hinu hefðbundna  íshokkítímabili sé lokið eru margir okkar félaga að undirbúa sig undir æfingaferðir til útlanda í sumar. Þannig mun stór hópur SR-inga fara í æfingabúðir til Landskrona í Svíþjóð í júlí, en sl. sumar fóru SR-ingar einnig í þessar búðir. Þetta eru áhugasamir strákar í 2., 3., 4. og  5. flokki. Svo eru strákar úr SA einnig á leið til Landskrona. Einng munu nokkrir úr SR fara í æfingabúðirnar í Vierimaki í Finnlandi. Af þessu má vera ljóst að mikill áhugi er fyrir því að æfa íshokkí á Íslandi á sumrin, a.m.k. hluta úr sumri, og ef við eigum að geta nálgast nágrannaþjóðirnar enn frekar í getu er nauðsynlegt að geta boðið upp á slíkar æfingabúðir í júlí og ágúst, þ.e. áður en æfingatímabilið hefst fyrir alvöru.