Fréttir

Total items: 1194

Tampa Bay knúði fram sjöunda leikinn!

Dags: 07.06.2004 11:53


stlouis060504_celebrates_khabibulin.jpg

Ekki tókst Calgary Flames að tryggja sér Stanley bikarinn frammi fyrir heimamönnum í “Söðulhvelfingunni” sl. laugardagskvöld en Tampa Bay lagði þar Calgary í framlengingu, 3-2. Leikurinn hafði verið í járnum allan tímann og staðan 2-2 eftir venjulegan leiktíma. Í framlengingunni tókst Martin St. Louis að skora gæsilegt mark úr mjög þröngu færi og tryggja Tampa Bay því sjöunda leikinn og jafnframt úrslitaleikinn á sínum heimavelli. Þessi úrslit eru mikil vonbrigði fyrir Calgary og það kemur í ljós í kvöld hvort þeir hafi burði til að svara þessu áfalli. Tampa Bay er mjög vel skipað lið, með marga stórefnilega leikmenn, á borð við Lecavalier, St. Louis og Fedotenko, á meðan bekkurinn hjá Calgary er frekar skipaður “gömlum” og reyndum leikmönnum sem kannski hafa ekki verið taldir til stórstjarna. Þeir hafa þó Jarome Iginla sem er að verða einn albesti leikmaður Kanada og annan stórefnilegan, rússann Oleg Saprykin. Enda þótt Kanadamenn hafi skipað sér á bak við Calgary liðið í þessari úrslitakeppni er athyglisvert að bæði liðin eru fyrst og fremst kanadísk; Calgary með 17 Kanadamenn og Tampa Bay með 15! Afgangurinn fyrst og fremst Evrópumenn en fáir Bandaríkjamenn. Þetta er undarlegt og til umhugsunar.