Fréttir

Total items: 1194

Calgary Flames einum leik frá Stanley bikarnum

Dags: 04.06.2004 13:06


saprykin_celebrates_winner_194x255.jpg

Í gærkvöldi léku Calgary Flames og Tampa Bay sinn fimmta leik í úrslitakeppninni í NHL um Stanley bikarinn. Fyrir leikinn hafði Darryl Sutter, þjálfari Calgary, ásakað yfirstjórn NHL um að reyna að koma í veg fyrir að Calgary ynni bikarinn en NHL setti Ville Nieminen, sóknarmann Calgary, í eins leiks bann fyrir fimmta leik vegna tæklingar á Vincent Lecavlier í Tampa Bay. Þessi reiði eða hernaðaráætlun þjálfarans virtist skila árangri því leikar fóru svo að Calgary unnu fimmta leikinn í framlengingu í æsispennandi leik, 3-2, með marki frá Oleg Saprykin. Tampa Bay lék afspyrnuilla í fyrstu tveimur leikhlutunum en markmaðurinn Nikolai Khabibulin, þeirra besti maður í þessum leik, hélt þó Tampa Bay inni í leiknum. Calgary er því aðeins einum leik frá því að vinna Stanley bikarinn í fyrsta sinni frá 1989. Það yrði því í fyrsta sinni í 11 ár sem kanadískt lið ynni Stanley bikarinn en síðasta kanadíska liðið til að vinna bikarinn var Montreal Canadiens árið 1993. Það er því að duga eða drepast fyrir Tampa Bay en sjötti leikurinn fer fram “Söðulshöllinni” í Calgary á laugardagskvöldið. Nánar um leikinn hér.