Dags: 02.05.2004 22:57
Þá er tímabilinu 2003 - 2004 formlega lokið en í gærkvöldi var lokastundin á ísnum í Laugardalnum. Við það tækifæri var öllum SR leikmönnum veittar viðurkenningar fyrir góðan árangur, grillaðar pylsur og öllum gefinn kostur á að skauta. Auk þess voru veitt einstaklingsverðlaun í eftirtöldum flokkum:
Mfl. Ingvar Þór Jónsson, besti leikmaður
2. fl. Kári Valsson, mestu framfarir
2. fl. Gauti Þormóðsson, besti leikmaður
3. fl. Jón Þröstur Hauksson, mestu framfarir
3. fl. Úlfar Andrésson, efnilegasti leikmaðurinn
4. fl. Bosko Popovic, mestur framfarir
4. fl. Ævar Þór Björnsson, efnilegasti leikmaðurinn
5. fl. Ingvi Rafn Tómasson, mestu framfarir
5. fl. Tómas Tjörvi Ómarsson, efnilegasti leikmaðurinn
Það er óhætt að segja að leikmenn SR hafi verið félaginu til sóma, bæði innan vallar og utan. Æfingasókn hefur verið mjög mikil í allan vetur, mikið af nýjum leikmönnum bæst í hópinn sem eiga eftir að gera félagið enn öflugra þegar fram í sækir. Er þetta ánægjuleg þróun. Við viljum þakka þessum leikmönnum okkar fyrir skemmtilegan vetur og óskum þeim gleðilegs sumars. Sjáumst hress og kát í haust - Áfram SR!