Fréttir

Total items: 1194

Gaman saman í 5. flokki!

Dags: 30.04.2004 17:22


Í gærkvöldi brá allur 5. flokkur íshokkídeildar SR sér í gokart í Njarðvík en foreldrar í þessum flokki hafa verið duglegir við að standa fyrir ýmsum uppákomum til að styrkja samheldnina. Lagt var af stað með rútu um 18:00 og komið heim um 22:00. Allir fengu að keyra í tíu mínútur og í boði voru pizzur og gos. Ekki var annað að sjá að leikmennirnir væru hinir ánægðustu með kvöldið. Á dagskránni var ennfremur að fara í sund en vegna þess hversu langan tíma tók að koma öllum í gegnum kappaksturinn seinkaði förinni í bæinn og fella þurfti því niður sundferðina. Fararstjórar biðjast velvirðingar á því en vona að hægt verði að kalla hópinn saman, t.d. á línuskauta, sem fyrst. Fyrir hönd foreldra og farastjóra: Kveðja Lilla, Þórhildur, Sævar og Sigurjón.