Fréttir

Total items: 1194

Úrslitakeppnin í NHL

Dags: 23.04.2004 09:19


Þá er fyrstu umferðinni í úrslitakeppni NHL lokið og er óhætt að segja að töluvert hafi verið um óvænt úrslit. T.d. tókst Calgary Flames að slá Vancouver Canucks út í 7. leik en það sem helst þótti óvænt var frammistaða hins gamla stórveldis Montreal Canadiens (í 7. sæti) sem sló út Boston Bruins (í 2. sæti), eftir að hafa lent undir, 1-3, í rimmunni. Montreal sýndi mikinn karakter og náði að vinna þrjá leiki í röð og rimmuna samanlegt 4-3. Þetta hefur ekki áður gerst í meira en 90 ára sögu félagsins. Eins vakti það athygli að rússneski markvörðurinn Nocolai Khabibulin í Tampa Bay hélt markinu hreinu í þremur leikjum gegn New York Islanders. Annars urðu úrslit 1. umferðar sem hér segir:

Austurströnd

Tampa Bay Lightning - New York Islanders: 4-1

Boston - Montreal Canadiens: 3-4

Philadelphia Flyers - New Jersey Devils: 4-1 

Toronto Maple Leafs - Ottawa Senators: 4-3 

Vesturströnd

Detroit Redwings - Nashville Predators: 4-2

San Jose Sharks  - St. Louis Blues: 4-1 

Vancouver Canucks - Calgary Flames: 3-4 

Colorado Avelance - Dallas Stars: 4-1  

 

 

 2. umferð:

Tampa Bay - Montreal

Philadelphia - Toronto

Detroit - Calgary

San Jose - Colorado