Dags: 18.04.2004 19:55
Þá er Reykjavíkurmóti barna og unglinga í Laugardalnum lokið en lið Hrafna, Arna, Víkinga, Úlfa og Fálka háðu þar harða og spennandi keppni í 4, 5, 6 og 7. flokki. Alls voru þetta 18 lið sem kepptu. Úrslit urðu sem hér segir:
7. flokkur: Úlfar (1), Fálkar (2), Víkingar og Ernir (3)
6. flokkur: Úlfar (1), Ernir (2), Víkingar og Fálkar (3)
5. flokkur: Fálkar (1), Víkingar (2), Ernir (3), Hrafnar og Úlfar (4)
4. flokkur: Hrafnar (1), Fálkar (2), Víkingar (3), Úlfar (4), Ernir (5)
Fyrirkomulag þessa móts var frumraun félaganna, en ákveðið var að þjálfarar SR og Bjarnarins reyndu að raða upp sem jöfnustum liðum í hverjum flokki sem myndu svo keppa innbyrðis. Í hverju liði voru því leikmenn úr báðum félögum. Segja má að þessi tilraun hafi gefist nokkuð vel og leikmenn fengu tækifæri á að spila við 3 til 4 mismunandi lið í stað eins liðs. Ennfremur gafst leikmönnum úr liðunum tveimur tækifæri á að kynnast betur innbyrðis. Slíkt hlýtur að skipta máli fyrir framgang íþróttarinnar.