Dags: 16.04.2004 11:58
Það eru orð að sönnu. Það verður án efa mikill hasar leikur í kvöld norður á Akureyri. Norðanmenn eru staðráðnir í því að halda uppteknum hætti og vinna Íslandsmeistara titillinn. En sagan hefur sýnt að þegar menn eru búnir að koma sér þægilega fyrir í úrslitakeppninni, og halda að bikarinn sé komin í höfn (þegar einn leikur er eftir) að einmitt þá hafa krosstré brugðist sem og önnur tré og bikarinn endað á öðrum stað en upphaflega var áætlað. Þeir sem verða norður á Akueyri í þann mund sem leikar hefjast skulu vera staðsettir í Skautahöllinni í Akureyri. Núna sem aldrei fyrr hefur SR tækifæri til að sýna sitt rétta andlit !! Áfram SR !!!