Fréttir

Total items: 1194

Úrslitakeppnin: SR-SA: 1-7

Dags: 13.04.2004 12:29


Vonbrigðin voru mikil í gærkvöldi eftir leik SR gegn SA í úrslitakeppninni, en þetta var annar leikur liðanna. Í byrjun leiks mátti sjá að SR-ingar voru búnir að gefa hann fyrirfram en þeir gáfu SA mönnum hvert færið á fætur öðru. Sú var raunin nær allan leikinn, fyrir utan 3. leikhluta þegar SR-ingar vöknuðu upp af fúlum svefni og fóru að berjast einsog SR-ingum sæmir. Eina mark leiksins fyrir SR skoraði Richard Tahtinen. Næsti leikur er á föstudaginn norður á Akureyri, og er nokkuð ljóst að um harðann leik verður að ræða, þar sem SR-ingar eru nú sem aldrei fyrr að berja sig saman fyrir komandi átök. Næstu 3 leikir verða gríðarlega erfiðir og ekki auðvelt að segja til um úrslitin í þeim. Dómari leiksins, Ragnar Óskarsson, þreytti frumraun sína sem aðaldómari og fórst honum það ágætlega úr hendi, enda var hann með sér til fulltingis gott fólk á línunum og í boxinu.