Fréttir

Total items: 1194

Úrslitakeppnin: SA-SR: 5-2

Dags: 12.04.2004 12:02


Skautafélga Reykjavíkur tókst á við Skautafélag Akureyrar í spennandi leik norður á Akureyri í gærkvöldi. Skemmst er frá því að segja að SR-ingar sýndu á köflum góðan leik og oft gekk uppspilið meistaralega vel fyrir sig. En þrátt fyrir góðan vilja vantaði baráttuviljann til að klára færin. Jason Selkirk var atkvæðamikill í leiknum fyrir SR þar sem hann skoraði bæði mörk SR í leiknum. En í þessum leik sem öðrum náðu SA menn að nýta sér mistök SR-inga sér í hag. Þrátt fyrir úrslit leiksins eru SR-ingar hvergi af baki dottnir og eru menn farnir að undirbúa komandi átök sem eru á mánudaginn kl.18:00. Ætla leikmenn m.a. að mæta í létt sprikl í dag kl.15:00.