Fréttir

Total items: 1194

U-18: Ísland - Belgía; 4 - 3

Dags: 31.03.2004 19:59


u18.jpg

Rétt í þessu var að ljúka þriðja landsleik hjá landsliði okkar skipuðum leikmönnum undir 18 ára. Íslendingar lögðu Belga 4-3 í leik þar sem úrslitin réðust ekki fyrr en á lokamínútunum. Mörk íslands skoruðu Daniel Ericsson (3) og Gauti Þormóðsson skoraði svo sigurmark Íslands á lokamínútum leiksins. Glæsilegur sigur hjá strákunum þar sem Belgar hafa hingað til lagt Íslendinga að velli á HM. Með sigri þessum aukast mjög möguleikar Íslendinga á að ná að halda sér í 2. riðli en þess ber að geta að Ísland vann sig upp úr 3. riðli á síðasta HM. 
Nánar á www.ihi.is