Fréttir

Total items: 1194

U-18 leikir við Denver.

Dags: 23.03.2004 09:38


U-18 landsliðkarla lék á sunnudags og mánudagskvöld við lið frá Denver. Skemmst er frá því að segja að okkar strákar báru höfuð og herðar yfir Denverliðið, og rúmlega það.
Fyrsti leikurinn fór 7-0 fyrir Íslandi og seinni leikurinn, sem var í gærkvöld, fór 12-2 fyrir Íslandi.
Það kom á óvart hversu daprir leikmenn Denver í samanburði við íslensku strákana bæði skautalega og kylfutæknislega séð. Denver liðið hefur reyndar ekki verið á ís í rúma 2 mánuði áður en það kom hingað.

Það er skemmtilegt að sjá það að fleiri og fleiri erlend lið leggja leið sína til íslands til þess að spila hokkí og kynnast öðrum liðum. Er þetta annað liðið sem kemur til landsins, án þess að vera taka þátt í móti. Svo má ekki gleyma Iceland Invitational sem í enda síðasta árs og síðan nýliðið heimsmeistaramót.
Vonandi er þetta þróun sem mun halda áfram.