Fréttir

Total items: 1194

Tyrkland - Írland

Dags: 21.03.2004 16:57


Á milli Írlands og Tyrklands er að venju bæði himinn og haf en að þessu sinn skildi aðeins pökkurinn þessar tvær þjóðir af.  Sjöunda leiknum á HM í Laugardalnum er lokið með sigri Tyrklands 7 – 4.  Báðar þessar þjóðir hafa leikið gegn íslenska landsliðinu og verið verðugir andstæðingar.  Það var því búist við hröðum og skemmtilegum leik en bæði liðin hafa á að skipa sterkum og liprum leikmönnum. 

 

Þessi fyrsta lota einkenndist af miklum sóknarþunga Tyrkja og baráttugleði Íra, sem skoruðu fyrsta mark leiksins á fjórðu mínútu.  Tyrkir náðu þó ekki að svara fyrr en undir lokin og þá með tveimur mörkum á 18. og 19. mínútu. Lotan endaði 2 – 1 fyrir Tyrki.

 

Önnur lota byrjaði af miklum krafti af hálfu Tyrkja og gerðu þeir í henni fjögur mörk gegn engu frá Írum og leit út um tíma að Írar væru hreinlega hættir.  Tyrkir voru allsráðandi og virtust eiga leikvöllinn enda með dómarana á sínu bandi. Þessi einstefna var frekar leiðinleg þó mörkin væru falleg og virtist sem leikmenn Tyrkja hefðu farið í smiðju íslenska landsliðsins í gerð marka, svo glæsileg voru þau. Lotan endaði 4 – 0 fyrir Tyrki.

 

Eitthvað hefur þjálfari Íra sagt við þá fyrir þriðja leikhluta, því þeir komu breyttir menn til leiks.  Um tíma leit út fyrir að þeir tækju leikinn í sínar hendur með þremur mörkum í upphafi leikhlutans en agaður leikur Tyrkja ásamt marki kom í veg fyrir það.  Þriðja lota endaði  3 – 1 fyrir Íra sem léku með hjartanu en það dugði því miður ekki, þeir urðu að játa sig sigraða fyrir þrekmeira og agaðra liði. 

 

Áhorfendur sem voru flestir á bandi Íra skemmtu sér vel og voru sammála um að markmaðurinn, Kevin Keily, væri þeirra besti maður en  Lengiz Ciplac  hjá Tyrkjum.

 

Mörk og stoðsendingar,

Tyrkir:

Lengiz Ciplac  3/2

Froglu Onur     3/1

Eren Erbin        1/0

Serkan Yaptrilar 0/2

Emrah Ozmen    0/2

Galip Hamarat 0/1

Erdogan Losrun 0/1

Gokturk Tasdemer 0/1

 

Mörk og stoðsendingar,

Írar:

Stephen Hamill  1/1

William Morrison 1/1

David Morrison 1/0

Lawer Jurovich 1/0

Mark Bowes 0/1