Fréttir

Total items: 1194

Mexíkó - Tyrkland: 2 - 3

Dags: 19.03.2004 08:40


Í gær léku Tyrkir við Mexíkó á þriðja degi HM. Fyrirfram var búist við frekar jöfnum leik og sú varð raunin. Tyrkirnir komu ákveðnari til leiks, voru betri aðilinn í fyrsta leikhluta og uppskáru mark úr power-play á 10. mínútu eftir gott spil og var þar að verki leikmaður nr.17, Onur Eroglu. Nokkuð var um að menn væru reknir útaf í fyrsta leikhluta og fengu Mexíkóar 5 á 3 power-play en náðu ekki að nýta sér það. En í öðrum leikhluta hysjuðu Mexíkóar upp um sig buxurnar og áttu betri leik. Strax á annarri mínútu fengu þeir "power-play" og þá skorar leikmaður þeirra nr.16, Manuel Sierra glæsilegt mark með "slapskoti" frá bláu línunni. En þrátt fyrir buxnahífingar Mexíkóa í upphafi leikhlutans misstu þeir á köflum einbeitinguna og gerðu Tyrkir þá harða atlögu að þeim. Tyrkir fengu svo víti á 9. mín eftir að einn leikmaður þeirra var kominn í hraðaupphlaup og var kræktur niður. Markaskorarinn Onur var látinn taka vítið en tókst ekki betur upp en svo að hann skildi pökkum eftir er hann ætlaði að skjóta. Í seinni hluta annars leikhluta jókst svo hraðinn í leiknum  og sköpuðust mörg færi á báða bóga.   Staðan var 1-1 í lok annars leikhluta. Þriðji leikhluti var mjög spennandi þar sem bæði lið komu sem blóðþyrstir úlfar úr búningsklefum sínum. Mexíkóar byrjuðu betur og komust yfir 2-1 á 5. mín með fallegu slapskoti frá leikmanni nr.15, Fernando Ugarte. En þeir voru varla hættir að berja kylfunum í battann þegar Tyrkir svöruðu á 6. mín með power-play marki og var það leikmaður nr.12, Tufan Dinc sem skoraði. Nú var staðan orðin 2 – 2 og leikurinn í járnum. Mikil spenna ríkti í leiknum og á 19. mín skorar leikmaður nr.18, Cengiz Ciplak glæsilegt mark fyrir Tyrki þar sem hann fór framhjá tveimur varnarmönnum Mexíkóa og "klobbaði" markmannin. Þá tóku Mexíkóar leikhlé og tóku markmanninn úr markinu í von um að geta nýtt sér liðsmuninn, það gekk ekki og unnu Tyrkir því verðskuldaðan sigur 2-3.

 

Menn leiksins voru leikmaður nr. 17 hjá Tyrkjum, Onur Eroglu, og hjá Mexíkóum leikmaður nr.15, Fernando Ugarte. Ágætlega var mætt á leikinn en fleiri og fleiri tíndust inn eftir því sem leið á hann. Dómgæslan var næstum óaðfinnanleg