Dags: 17.03.2004 21:36
Leikur Írlands gegn Mexíkó fór fram kl: 16:00 á fyrsta degi heimsmeistaramótsins. Leikurinn byrjaði mjög vel fyrir Írana en þeir náðu að skora fyrstu tvö mörkin í leiknum. Mexíkó var samt ekki lengi að svara fyrir sig því að þeir skoruðu tvö mörk áður en fyrsta leikhluta lauk. Í öðrum leikhluta kom markaruna hjá landsliði Mexíkó en þeir skoruðu 4 mörk en Írar náðu aðeins að skora 1 mark og reyndist það síðasta markið þeirra í leiknum. Mexíkóar voru hins vegar ekki alveg hættir því bættu tveimur mörkum til viðbótar í þriðja leikhluta. Mikið var um brot í þessum leik, þó engin alvarleg. Leikurinn var ekki mjög hraður en þó mátti sjá falleg tilþrif hjá báðum liðum. Markmennirnir sýndu falleg tilþrif og þá sérstaklega markmaður Mexíkó sem var þeirra besti leikmaður. Markahæstur Mexíkóa var Juan Pablo Roberts með 3 mörk en hjá Írum dreifðust mörkin á þrjá leikmenn. Besti maður Íra í þessum leik var David Gibson sem stóð uppúr.
Ekki var mikið af áhorfendum á leiknum, en þetta var fyrsti leikurinn sem var spilaður á mótinu. Þess má geta að einn af leikmönnum Mexíkó söng þjóðsöng þeirra í leikslok.