Fréttir

Total items: 1194

Dagskrá HM

Dags: 15.03.2004 19:15


Á morgun, þriðjudag, hefst  í Laugardalnum heimsmeistarakeppnin í íshokkí karla í 3. deild, en liðin sem munu keppa um sæti í 2. deild eru: Ísland, Armenía, Írland, Mexíkó og Tyrkland. Alls verða leiknir 10 leikir á 6 dögum þannig að það verður nóg um að vera í Laugardalnum. Við munum fylgjast grannt með öllum leikjum og birta umsögn um hvern leik strax daginn eftir. Eftirtaldir SR-ingar munu skrifa umsagnirnar á heimasíðu SR: Berglind Ólafsdóttir, Björn Örvar, Gylfi Rúnarsson, Ingvar Jónsson, Jón Þór Eyþórsson, Kári Valsson, Kolbrún Kristleifsdóttir og Kristján Óskarsson. Vonum við að sem flestir fylgist með umfjölluninni en best er náttúrulega að bregða sér í höllina, en það kostar 500 kr fyrir hvern dag (1-2 leikir). Dagskrá mótsins er sem hér segir:

Þriðjudagur kl. 16:00  Írland-Mexíkó

Þriðjudagur kl. 19:45  Setning mótsins

Þriðjudagur kl. 20:00  Tyrkland-Ísland

Miðvikudagur kl. 20:00  Armenía-Írland

Fimmtudagur kl. 16:30  Mexíkó-Tyrkland

Fimmtudagur kl. 20:00  Ísland-Armenía 

Föstudagur kl. 20:00  Írland-Ísland

Laugardagur kl. 16:30  Tyrkland-Írland

Laugardagur kl. 20:00  Mexíkó-Armenía

Sunnudagur kl. 16:30  Armenía-Tyrkland

Sunnudagur kl. 20:00  Ísland-Mexíkó