Dags: 15.03.2004 13:22
Eins og íshokkíáhugafólk ætti vita þá er heimsmeistarakeppnin í karlaflokki 3. deildar alveg á næstu grösum en á þriðjudaginn verða fyrstu tveir leikirnir. Lið Íslands, ásamt liði Írlands, Armeníu, Tyrklands og Mexíkó munu þar heyja harða baráttu um að komast upp í 2. deild. Við munum reyna að gera þessu móti góð skil og fjalla um hvern einstakan leik á heimasíðu SR en allir leikir þess verða í Laugardalnum. Af þessum sökum falla allar æfingar niður hjá SR á þriðjudaginn, fimmtudaginn og laugardaginn. Þess í stað hvetjum við SR-inga til að fjölmenna í skautahöllina og fylgjast með skemmtilegri keppni, því annar eins viðburður í íshokkí gerist ekki á hverjum degi hér á landi. Við væntum þess einnig að fjölmiðlar sýni þessu móti áhuga því þarna er á ferðinni einstök skemmtun fyrir áhorfendur sem vilja fylgjast með íþróttum. Ekki sakar heldur að Íslendingar tefla fram mjög frambærilegu liði sem er góð blanda af ungum strákum, reynsluboltum og svo íslenskum strákum sem hafa verið að gera það gott í Svíþjóð. Landslið Íslands hefur sjálfsagt aldrei áður verið eins vel mannað en hvort það dugi til á eftir að koma í ljós. Landsliðið þarf hins vegar á okkar stuðningi að halda til að komast alla leið. Mjög margir sjálfboðaliðar koma að þessu móti og mun SR sjá um að manna 7 fasta starfsmenn fyrir hvern leik. Vel hefur gengið að fá fólk til starfa, margir komnir með reynslu og aðrir tilbúnir.
Hjá Alþjóðasambandinu má fylgjast með mótinu hér.