Fréttir

Total items: 1194

Landsbankamótinu lýkur í dag

Dags: 14.03.2004 10:27


Þá er komið að lokum Landsbankamótsins í Egilshöllinni en því lýkur með verðlaunaafhendingu kl. 13:00 í dag. Mikil fjöldi þátttakenda hefur hefur leikið listir sínar og skemmt áhorfendum undanfarna daga og ekki er ólíklegt að aldrei hafi fleiri börn og fleiri lið tekið þátt í barnamóti í íshokkí hér á landi. Það þarf ekki að koma á óvart þar sem mikil fjölgun nýliða hefur átt sér stað í félögunum í vetur og alveg ljóst að það styttist í að nýtt félag verði að skjóta rótum. Sérstaklega hefur verið gaman að fylgjast með framförum og áhuga þessara ungu íshokkíspilara á ísnum og greinilegt að góð áhersla á þjálfun yngri flokka í félögunum þremur er að skila sér. Svo má bæta við að dómgæslan á mótinu hefur verið góð, aðstaða fyrir leikmenn og áhorfendur til fyrirmyndar og öll framkvæmd og skipulag mótsins Birninum til sóma. SR þakkar fyrir gott og skemmtilegt mót. Við sjáumst svo aftur 23-25. apríl í Laugardalnum en þá er röðin komin að SR að skipuleggja Íslandsmótið.