Dags: 04.03.2004 23:16
Í kvöld lék SR við Björninn í 3 flokki A í Íslandsmótinu en þessi leikur fór fram í Laugardalnum. Björninn byrjaði af miklum krafti og okkar strákar þurftu að standast þunga pressu meira og minna allan fyrri hálfleikinn. Birninum tókst þó aðeins að skora tvisvar, og þá fyrst og fremst vegna glæsilegrar frammistöðu Arons Stefánssonar í marki SR sem hélt okkar mönnum inni í leiknum. SR-ingar náðu þó að klóra í bakkann og þar var að verki Styrmir Friðriksson eftir góða sókn. Í seinni hálfleik tóku SR-ingar að sækja meira, áttu fleiri færi og fleiri skot á mark andstæðinganna. Bjarnarmenn voru þó ávallt tilbúnir til að refsa SR-ingum og það gerðu þeir svo sannarlega; bókstaflega kafsigldu SR-inga, röðuðu inn mörkunum og unnu 8-1. Það verður að segjast að 3. fl. A hjá Birninum er geysilega öflugt og vel spilandi lið, varla veikan hlekk að finna í liðinu, og leikskilningur og kraftur nánast í sérflokki. Varnarleikurinn er sérstaklega vel útfærður og samhæfing mikil. Okkar strákar áttu einfaldlega ekkert svar við þessu liði - en þeir gera betur næst. Bæði liðin léku af prúðmennsku og voru íshokkíinu til sóma.