Dags: 06.03.2004 13:03
Skautafélag Reykjavíkur mun mæta Skautafélagi Akureyrar í Íslandsmeistaramóti karla íshokkí í dag, laugardag, kl.17:30.
Leikir þessara liða hafa oftar en ekki verið spennandi og skemmtilegir á að horfa. SR-ingar hafa nú gott færi á að sýna hvað í þeim býr þar sem SA menn hafa orðið fyrir nokkurri blóðtöku í síðustu leikjum.
Leikmennirnir Rúnar Freyr Rúnarsson og Clark McCormik verða að öllum líkindum að taka út sín leikbönn og Sigurður Sveinn Sigurðsson er á sjúkralista enn sem stendur.
SR-ingar hafa ekki heldur verið meiðslalausir því að undanfarna viku hefur Helgi Páll Þórisson verið að glíma við væg hnémeiðsl, eftir brambolt á glímugólfi við sér knáari mann, og er tvísýnt með þátttöku hans í leiknum á laugardag... en það mun koma í ljós síðar.
Allir sem hafa gaman af góðum hokkíleikjum eru beðnir vinnsamlegast um að hópa sig saman í Skautahöllinna í Laugardal í dag og hvetja sína menn áfram.
Áfram SR !