Dags: 01.03.2004 15:44
Á laugardagskvöldið áttust við í Egilshöll Björninn og SA í Íslandsmóti
karla. Í heild var viðureigin frekar óspennandi. Björninn átti góðan
sprett í fyrsta leikhluta og Daði og Sergei skoruðu flott mörk eftir mikla vinnu
í varnarsvæði SA. Síðan tóku Akureyringar öll völd á ísnum, einsog svo oft áður
í vetur, og völtuðu yfir Bjarnarmenn og unnu 12-4. Í liði SA áttu þeir Jón
Gísla, Tibor Tatar og Björn Már annars góðan leik fyrir SA.
Leikurinn
einkenndist af áþarflega miklum ruddaskap sem átti ekkert erindi inná ísinn.
Kannski má þar um kenna reynsluleysi dómara leiksins, Helga Páls Þórissonar, sem
hleypti leiknum óþarflega mikið upp, ásamt "þátttökuleysi" línuvarða. Í byrjun
þriðja leikhluta lenti þeim saman Sigurði Sveini Sigurðssyni (SA) og Sergei Zak
(BJ) með þeim afleiðingum að Sigurður fór af leikvelli með slæma áverka í
andliti. Sergei hlaut "Game miscunduct" fyrir of háa kylfu. Rúnar
Freyr Rúnarsson (SA) fékk síðan Leikdóm fyrir að hefna fallinn félaga
sinn er hann réðst á Sergei Zak í kjölfarið. Sem sagt, ekki gott
innlegg í íslenska íshokkímenningu þar sem við þurfum fyrst og fremst á jákvæðum
fyrirmyndum að halda.