Dags: 27.02.2004 17:59
Um helgina verður nóg um að vera í íshokkíinu hér fyrir sunnan. Æfingabúðir fyrir U18 ára landsliðið hefjast í Egilshöll í kvöld en 35 strákar voru valdir af Sergei Zak landsliðsþjálfara til að taka þátt. Ú þessum hópi verður svo endanlegt U18 landslið valið fyrir HM í Ungverjalandi. Á laugardagsmorgun keppir SR 5B við Björninn í Laugardal og kl. 18:00 leikur Björninn við SA í karlaflokki í Íslandsmótinu. Á sunnudagsmorgun leika svo SR 5A og 6/7 flokkur við Björninn í Egilshöll, og svo SR 4B við Björninn kl. 18:00 í Egilshöll. Á sama tíma leikur svo SR 4A við Björninn í Laugardal og kl. 19:10 leikur SR 2.fl. við Björninn í Egilshöll. Þetta er því nokkuð flókin og víst að Peter Bolin þjálfari, allir aðstoðarþjálfarar og liðstjórar munu hafa nóg að gera!