Fréttir

Total items: 1194

SR-Björninn í 3. fl. A

Dags: 27.02.2004 00:02


Í gærkvöldi léku SR-ingar við Björninn í 3. flokki í Íslandsmótinu. Leikurinn var framan af jafn og spennandi, þar sem bæði lið skiptust á að sækja. Eftir 30 mín. leik var staðan enn 0-0. SR komst þá yfir með marki frá Þorsteini Björnssyni en Björninn svaraði að bragði. Síðan komust SR-ingar aftur yfir með marki frá Geoffrey Þór en aftur jafnaði Björninn leikinn. Sindri Sigurjónsson skoraði svo 3. markið fyrir SR. Þegar hér var komið breytist leikurinn verulega, Björninn setti í fluggír og beinlínis skautaði yfir SR-inga sem ekki virtust eiga neitt svar við kröftugum leik Bjarnarmanna sem röðuðu inn mörkunum og unnu 3-6. Þennan seinni hluta leiksins vantaði mikið upp á baráttuna hjá SR, ekki mikið skautað né hnoðast í sóknarmönnum Bjarnarins. Þetta verður að bæta og það ætti að ganga eftir, því 3.fl. hefur bætt sig verulega á þessu tímabili, enda stemningin ágæt í hópnum.