Fréttir

Total items: 1194

Ilya Kovalchuk sá mest spennandi?

Dags: 24.02.2004 20:22


ilya2.jpg

Nýlega fór fram skoðunarkönnun á hockeynews.com um það hver hefði verið mest spennandi leikmaðurinn í NHL á þessu tímabili. Könnunin fór þannig fram að einn leikmaður úr hverju NHL-liði fékk eitt atkvæði. Niðurstöðurnar voru nokkuð athyglisverðar þar sem tveir Rússar og tveir Svíar hlutu öll atkvæðin. Hinn tvítugi Ilya Kovalchuk úr Atlanta Thrashers hlaut 14 atkvæði (47%), Pavel Datsyuk úr Detroit Redwings 7 (23%), Markus Naslund úr Vancouver Canucks 5 (17%) og Peter Forsberg úr Colorado Avalance 4 (13%). Þetta sagði Mike Knuble úr Boston Bruins um Ilya Kovalchuk:
"Hann er ótrúlegur leikmaður. Pökkurinn beinlínis springur af kylfunni þegar hann skýtur. Hann skautar svo vel, og svo er hann svo fljótur... að skjóta".

 

#1

#2

   Pavel Datsyuk

#3

  Markus Naslund

#4

 Peter Forsberg