Dags: 20.02.2004 15:31
Það styttist óðum í Heimsmeistaramótið í íshokkí en riðillinn sem Ísland tekur þátt í fer fram hér á landi, nánar tiltekið í Laugardalnum. Fyrsti leikurinn verður þann 16. mars en sá síðasti sunnudaginn 21.mars. Þar sem um mjög stóran viðburð er ljóst að stóran hóp sjálfboðaliða verður að virkja til að allt gangi upp. Íshokkísambandið er nú að leita eftir aðstoð og hvetjum við foreldra, eldri leikmenn og velunnara íshokkís að gefa kost á sér í sjálfboðavinnu. Kunnugir segja að þetta sé hin besta skemmtun og mikil stemning. Þeir sem hafa áhuga hafi samband við okkur hjá SR eða á netfang ÍHÍ, hockey@isisport.is. Annars má nálgast dagskrá mótsins hér.