Fréttir

Total items: 1194

SR-Björninn í 3B

Dags: 19.02.2004 21:53


Í kvöld áttust við SR og Björninn í 3B. Leikurinn var mjög skemmtlegur á að horfa, lengi framan af nokkuð spennandi en SR-ingar seigir að nýta færi sín með góðum og vel útfærðum hraðaupphlaupum. Oft á tíðum sást stórgott spil og greinilegt að þessir leikmenn eru í hraðri framför. Gaman var að sjá hvernig Ævar markvörður Björnsson, úr SR, elfdist með hverju skoti en hann varði oft á tíðum mjög vel. Annars stóðu SR-ingar, allir sem einn, sig mjög vel. Sama mátti segja um Bjarnarleikmenn enda þótt þeir virtust missa móðinn er á leikinn leið.