Dags: 16.02.2004 12:21

Yfirstandandi tímabil verður það síðasta hjá rússanum Igor Larionov í NHL. Igor er elsti leikmaðurinn í NHL en hann verður 44 ára á þessu ári. Hann hóf seint að leika í NHL eða 29 ára gamall og lengst af lék hann með Detroit Redwings, en nú leikur hann með New Jersey Devils.
Hann hefur unnið 3 Stanley Cup, tvö Ólympíugull og einn heimsmeistaratitil. Igor hefur alltaf þótt ótrúlegur leikstjórnandi og líklega sá besti sem komið hefur frá Evrópu.
Í NHL nýtur hann ómældrar virðingar og hann á sér marga aðdáendur. Hin rússneska goðsögn, þjálfarinn Viktor Tikhonov sagði eitt sinn um Igor er hann var beðinn um að lýsa spilamennsku Igors: “Ég er guðleysingi en ég er tilbúinn að viðurkenna að Igor er guðlegur leikstjórnandi”.
Svo þroskað er “sjötta skilningarvitið” hans að aðeins sjálfur Gretzky stenst þar samanburð. Sjálfur segist hann líta á íshokkí einsog skák þar sem þú verður að geta séð marga leiki fyrirfram og ekkert finnst honum skemmtilegra á ísnum en þegar hann getur lagt upp mörk fyrir félaga sína.
Hann segist hins vegar hafa nokkrar áhyggjur af þróun íshokkís í NHL, þar sem of lítil áhersla sé á hugsun, kylfutækni og skautun, en þeim mun meiri áhersla á leikskipulag (svokallað “trap”-kerfi) sem getur dregið úr spennu leiksins. Meira má lesa um þennan einstaka leikmann hér.